Ég ætla að vara ykkur við leik sem heitir TV Giant, ég keypti þennan leik fyrir nokkrum dögum síðan og ég verð að segja að hann er ömurlegur. Fyrir það fyrsta að þá er ekkert tutorial til staðar nema einhverjar upplýsingar um hvað hver fítus gerir í leiðbeiningunum. Þessi leikur er frá einhverju frönsku fyrirtæki en það á ekki að skipta neinu máli nema að sumir textarnir í leiknum eru alveg út í hött. Grafíkin er svona allt í lagi miðað við hvernig leikur þetta á að vera en “learning” boginn er alveg svakalegur, ég var kominn á dag númer 3 í leiknum þegar ég tók eftir því að maður átti að laga einhverja dagskrá til og færa til þætti og eitthvað sem þeir kalla “teasers” á rétta staði. Það er ekki oft sem ég verð það óánægður með leik að ég þurfi að skrifa um það á netinu en þessi algjörlega “takes the cake.” Varið ykkur á þessum nema þið starfið við dagskrárgerð.