Jæja þar sem einhver var svo elskulegur að benda mér á að ég gæti skrifað um sims hérna ákvað ég að prufa og sjá hvort grein mín myndi sleppa í geng.
Mér finnst Sims alveg frábær leikur og bíð spennt eftir Simsville.
En mér datt í hug að athuga hvort einhver ykkar hefur lent í því í leiknum að vera numin brott af geimverum.
Þetta hefur komið nokkrum sinnum fyrir hjá mér þegar fólk er að nota “kíkirinn” sérstakleg að kveldi til. Þau hverfa samt bara í nokkra klukkutíma (simstíma) og koma svo aftur að það virðist ósködduð frá þessari lífsreynslu. En einhverstaðar las ég nú að persónuleiki þeirra getur breyst við þetta, það hefur samt allaveganna ekki gerst hjá mér.
Vonandi hefur einhver áhuga á sims og vill ræða um leikinn :)

p.s. ég veit um fullt af góðum síðum til að downloda af ef einhver hefur áhuga.

Kveðja Alfons
-Song of carrot game-