Sælir/ar.

Ég tel mig hafa leitað þónokkuð að íslenskum server í þessum annars ágæta leik, en án árangurs. Er það staðreynd að fólki finnst þetta ekki góður leikur, er hann fallinn í gleymsku, eða (sem ég vona) að ég hafi ekki leitað nógu vel, og það sé til ísl.server f. þennan leik?

Ef ekki, er einhver áhugi hjá þeim sem geta, að setja upp slíkan server? Er einhver að spila þennan leik, eða myndi gera ef serverinn væri til staðar?

Kv. G.
-= sá sem á mest dót þegar hann deyr, vinnur =-