Ég fékk þennan alveg yndislega leik í jólagjöf og nauðgaði honum alveg…en vá það er nokkrir alvarlegir gallar í honum sérstaklega einn sem fær mig til að henda tölvunni útum gluggan, sko þegar ég er að keppa kemur oft fyrir að ég er alveg uppvið veggina og nei klessi ég ekki á eikkað ósýnilegt :S og stoppa næstum alveg og allir fara fram úr mér og ég tapa :@ Gerist þetta hjá einhverjum öðrum eða ? Og eitt enn sko var að keppa á móti Rival og hún klessti á í byrjun og var ég alveg að skeina henni, en nei þá vildi svo skemmtilega til að umferðin var bara eins og öll New York borg væri þar um ferð og þegar maður tók svona kannski 90°beygju og maður sá ekki fyrir hornið voru fullt af bílum líka og síðan tók Rivalinn fram úr mér og þá bara hverfur umferðin !?

En annars mjög góður leikur hér áferð alveg stórkostlegur..geðveik grafík og topp bílar.

En líka ein spurning væruði ekki til að sjá einn svona gamlann NFS svona með gömlum köggum ekki bara svona nútíma bílum það væri alveg æði að mínu mati