Þetta er gamall leikur sem ég fékk gefins fyrir nokkrum árum, svona 2000 eða eitthvað, mjög góður.. Kom mér hinsvegar alveg í opna skjöldu núna þegar mig langaði að spila hann aftur.. Eftir að ég var búinn að installa honum og ætlaði að spila fraus hann í byrjuninni þegar byrjunarþemað kom en það hefur aldrei verið hægt að sleppa horfa á það… ég prófaði að skrifa á annan, hreinan disk og það gerðist alveg það nákvæmlega sama, jafnvel þegar ég prófaði að skrifa hann í myndarformi(bin,cue og það).. Heimasíðan er ekki lengur uppi þannig enginn fær maður svör þaðan.. Hlýtur að vera því að hann er fyrir Windows 98, það hlýtur að vera svarið en samt skil ég ekki alveg hví diskurinn neitar að koma úr geisladrifinu.. :S
————–