Ég er eiginlega hættur að spila tölvuleiki en ákvað samt að kaupa mér gta san andreas i pc. Ég fer niður i elko og kaupi hann og vissi að það vantaði dvd drif og lét hann þá í systur minnar tölvu og flutti hann yfir i mina. Þá vantaði crack og ég náði í eitt af netinu en þá fraus hann alltaf þegar ég reyndi að komast inn i hann. Svo að ég náði í annað en ekkert breyttist. Svo að ég náði í mörg önnur en ekkert skeði. Svo að ég tala við vin minn sem byr herna hliðina á mér og hann sagði mer að sharea drifinu hennar systur minnar til min. Ég gerði það en samt fraus hann áfram. Svo fékk ég lánaði dvd drif hja vini minum því hann var ekki að nota það og installeraði honum i tölvuna og allt það. En samt gerist það sama og ég veit ekkert hvað ég á að gera.