Ég keypti mér Grand theft auto san andreas í gær go var náttla ekki með dvd drif. Svo að ég lét hann í systur minnar tölvu sem var með dvd drif og flutti hann svo yfir á mína. Þá þurfti ég crack. Ég náði í mörg cröck en alltaf gerðist það sama: Tölvan byrjaði að loada leikinn, sýna hverjir gerðu hann og svoleiðis, svo bara allt í einu fraus hún. Svo að ég sleppti því og shareaði dvd drifi systur minnar til þess að getað spilað leikinn bara í gegnum það. En það virkaði ekki heldur svo að ég fékk lánað dvd drif hjá vini mínum því að hann notaði það ekkert og stakk því í tölvuna. Þá var ég viss um allt væri klappað og klárt. En nei, samt virkar það ekki. Og ég er alveg í algerum vandræðum og veit ekkert hvað ég á að gera. Ég er með directx 9.0 og allt það en samt gerist alltaf það sama. Þetta er frekar fúlt og fer í taugarnar á mér.
Er eitthver hér sem veit hvað ég á að gera?