Daginn!
Ég er afskaplega hrifinn af Tony Hawk 4 í Playstation2 en það er þó eitt sem pirrar mig. Í Zoo (dýragarðinum) á ég eitt verkefni eftir en það er í sædýrasafninu. Því miður er það lokað og ég kemst ekki inn! Veit einhver hérna hvernig ég kemst inn? Mig grunar að ég þurfi að senda fílinn að brjóta þær niður en veit ekki hvernig ég á að gera það. Endilega látið þið mig vita ef þið vitið hvað á að gera.
Kveðja, Deathstalker.