Ég er búinn að vera að spila GTA VC í dá góðann tíma núna og hef skemmt mér alveg sérdeilis prýðilega en nú er ég í bölvuðu basli.
ÞAnnig er mál með vexti að ég er búinn með “öll” mission-in að ég held. Samt er ég ekki búinn að klára hann.

ÞAð eru engin verkefni neinstaðar að finna þannig ég er bara hlaupandi um einsog hálfviti, leitandi að leyni styttum, leikandi löggu, sjúkraliða, slökkviliðsmann, leigubílstjóra og svoliðis. Það er í sjálfu sér alveg ágæt en getur orðið leiðinlegt til lengdar.

Ég er búinn að kaupa slatta að húsum útum allan bæ, en er samt ekki viss. Ég er búinn að kaupa bílasöluna, ísbúðina, bátaleiguna, stríðpistaðinn, klúbbin og fullt af venjulegum “vistunar” húsum.

Ég veit ekki hvað ég á að gera til að klára leikinn.
ÞArf maður að klára og vinna allar kappaksturkeppnirnar sem eru í bílasölunni.
ÞArf maður að ná öllum 100- leynistyttunum.
HVAÐ ÞARF MAÐUR AÐ GERA TIL AÐ KLARA ÞENNAN !$“#”#%!" leik??????

með fyrirfram þökk………


cent