Ég verða að segja frá einum snilldarleik sem vinur minn bendi mér á. Hann heitir postal2. Þessi leikur er mjög ofbeldisfullur, hann er bannaður í yfir 10 löndum og er Bretland þar á meðal. Og það kemur vel fram þegar maður kveikir á leiknum að leikurinn sé ekki við hæfi barna eða þeirra sem ætla útí pólitík. Og að enginn ætti að reyna þá hluti sem er hægt að gera í þessum leik. Leikurinn gengur útá hina einföldustu hluti sem lenda oft í hörðum skotbardaga. Og á endanum eru allir á móti manni. Það er eitt sem hægt er í þessum leik sem ég hef ekki séð í öðrum hversu tilgangslaust sem það nú er, það er hægt að pissa, það er þá aðallega notað ef það skyldi kvikna í manni, þá pissar marr uppí loftið og þá slökknar eldurinn, auk þess er hægt að pissa á fólk. Það er einnig hægt að troða köttum á framan á byssur eins og haglara og m16 til að fela byssurnar betur. Það er hægt að sparka upp hurðir,náttúrlega líka í fólk, og í hraðbanka til að fá pening. Það er hægt að ræna banka ef maður vill. Auk þess getur maður Framið sjálfsmorð með því að setja handsprengju uppí munninn á sér. Þetta er svona leikur þar sem er hægt að eyða klukkustundum saman bara í að leika sér. Ef maður er handtekinn getur maður strokið úr fangelsinu, þar sem er líka hægt að kveikja í hlutum,bílum og fólki. Þið getið nálgast þennan leik og fengið meira upplýsingar á "http://www.gopostal.com/"
————–