Eru einhverjir hér sem spila SHII online þá hef ég mikinn áhuga að vita um þá, ég hef nokkrum sinnum lent í spili á GameSpy og það var magnað, þetta er ekkert of hraður leikur en þegar nokkrir eru saman þá er þetta geggjað tekur að vísu hellings tíma en spiluninn er eins og maður sé staddur í Das Boot heirir í djúpsprengjunum þegar hinir eru kanske undir árás frá tundurspillum. Þessi leikur á að verða samtengdur öðrum leik sem er frá sama aðila og þar ert þú á tundurspilli, þannig að þetta er einn sá raunverulegasti “online” leikur sem ég hef spilað, það væri gaman ef væri opnað svæði fyrir þennan leik.