Ég er að gefast upp á að reyna að installa MOHAA á vélina mína.

Er búinn að prófa 3 eintök af leiknum en fæ alltaf sömu villuskilaboðin:

Component: Data Files Minimal
File Group:
File:
Error: Catastrophic failure

Ég er búinn að prófa að kópera allt á harða diskinn og installa þaðan; installa nýjum Install Shield og að installa leiknum á nýformattaðan harðan disk með fresh install af XP.

Hefur einhver hér lent í svipuðu veseni eða getur einhver hjálpað mér? Ég er búinn að senda EA ímeil en hef ekki fengið neina almennilega hjálp frá þeim ennþá.

Getur í alvöru verið að einhverjir tölvuleikir einfaldlega “passi ekki” á ákveðin system?