Ég sótti nú þetta demo, enda hef ég fílað Age of… leikina alveg þokkalega. Jújú… búnir að skipta yfir í 3D, það er í lagi mín vegna, býður upp á ýmsa möguleika. Komnar Heores, veit ekki alveg hvort ég fíla það, hvað næst? Strength/Dexterity/Intelligence fídusar? En meiri vídd, maður virðist geta valið sér “Tré” eftir því hvaða guði maður vill dýrka, þannig að þetta eykur fjölbreytni.
EN… Það virðist sem það sé eitthvað skrýtið í þessu demói (amk vona ég að það sé bundið við demóið). Það eru 4 stig (easiest, easy, etc..). Í því fyrsta gerir andstæðingurinn bara ekki rassgat, hann bara bíður eftir að ég kem með her og rústa honum. Í því næsta er hinns vegar allt farið til helvítis, ég er rétt búinn að smíða allt sem ég þarf (Barracks, Archery, Blacksmit) til að geta farið að herja á helvítið, en þá birtist hann bara með 10-15 manna herdeild, með Heroes og steinglöngvur og ég rétt meika að berja hann af mér. Þannig að ég flýti mér að byggja upp her ef hann skyldi koma aftur, og ég er kominn með svona 10-15 stykki, en þá byrtist hann aftur með svipaðan styrk!
Mér hefur tekist að halda þetta út í 4 skipti, alltaf vonað að hann verði að taka sér smá pásu, en á endanum tekst honum að eyðileggja nauðsynlegar byggingar! Á ekki að vera millistig þarna eða er ég bara svona hrikalega lélegur? Þó hefur mér gengið ágætlega í eldri leikjum.
Bara smá andvökupælingar,
J.