Dömur mínar og herrar.

Ég vil vekja athygli á því að Soldat-þjónn Símans Internet, skjalfti23.simnet.is hefur verið undantekningalaust fullur þegar ég hef ætlað mér að tengjast honum hingað til. Svo virðist sem leikurinn njóti meiri vinsælda en ætlað var í upphafi.

Þó finnst mér einnig rétt að benda á það er annað port opið á þeim netþjóni, 23074. Þar hafa verið CTF leikir í gangi í a.m.k. viku, en aldrei hef ég séð neinn annan en sjálfan mig þar.

Þegar skjalfti23.simnet.is:23073 er fullur, væri nærri lagi að reyna við skjalfti23.simnet.is:23074 og bíða. Sjálfur prófaði ég portið af leiða yfir því að komast ekki inn á 23073 (þar sem Soldat er svoleiðis lang-uppáhalds leikurinn minn), og viti menn. Ef við fyllum þann líka, væri kannski nærri lagi að biðja Símann Internet (það trausta og trygga fyrirtæki sem hefur gert svo mikið fyrir leikjanördana) um að setja upp fleiri port, með fleiri tegundum leikja. Ef vinsældirnar halda áfram að vaxa svona, kæmi jafnvel til greina að biðja Símann Internet um að hafa Soldat hluta af Skjálfta. Það væri þróun sem myndi fá mig sjálfan til þess að fara á Skjálfta til annars en að pirra umsjónarmenn með svívirðilegri drykkju og fíflagangi.

Hvað segja Soldat-menn um þetta mál?