Ágætu hugarar!


Hér sit ég við tölvu mína, búinn að gera í brækurnar því ég hef ekki vikið frá tölvunni því ég vil ekki gefast upp fyrir henni. Málið er að ég er að reyna að uppfæra Morrowind með nýlegum patch. Hvort ég er með evrópsku útgáfuna eða þá bandarísku get ég ekki sagt því ekkert bendir til hvors. Svona til að tryggja mig hef ég sótt bæði patch fyrir BNA útgáfuna og evró útgáfuna. BNA er 3,4MB en evró 6,09MB Þetta virðist breyta litlu því það kemur upp error sem segir Old File not found. Hvað það þýðir veit ég ekki.

Nú ríður á ágætu félagar, að hjálpa náunganum. Ef einhvert ykkar hefur lent í þessu og kunnið svar… endilega sendið mér skilaboð.

Siggibet

E.s. ég fjarlægði exe. fælinn svo bróðir minn gæti líkað spilað leikinn, náði bara í hann á gamecopyworld en það á ekki að skipta máli.