Ég mæli með þessari elsku!!!! Leikirnir í Playstation2 eru orðnir ótrúlega raunverulegir og þróaðri. T.d. Ég var að spila MAX PAYNE í gær og það er góður leikur, mæli með honum, góð kaup. Óvinirnir þar bíða ekki eftir til að láta skjóta sig. Þeir bregðast við öllu og elta þig um allt. Þeir eru mun gáfaðri en venjulega og eru mjög erfiðir viðureignar. Þeir fara t.d. í skjól og skjóta þaðan í öðrum leikjum myndu kallarnir hlaupa að manni í hrúgu bíða bara eftir því að deyja en nú er það breytt Playstation2 er kominn með bestu leikina eða hvað????
Nú er Xbox komin á markað. Það er hægt að sjá samanburð þeirra á http://www.xbox.is/xbox/tolur.htm
samkæmt því er PLAYSTATION" einfaldlega drasl við hliðina á Xbox. En þó keypti ég mér playstation2 eftir að hafa séð þetta ég bjóst við að xbox myndi ekki hafa eins gott leikjaúrval en þá fell mér fótur. Xbox eru með ótrúlegt úrval leikja, flestalla sem koma út á Playstation2 og fleiri t.d. HALO. Þá fór ég að pæla. Er PLAYSTATION2 orðin úrelt á svona stuttum tíma?
Er Bill Gates að fara að hertaka leikjamarkaðinn?
Er Playstation þess virði að kaupa eða á ég bara að skella mér á Xbox.
Ég veit ekki hvað er betra en Playstation2 nægir mér í bili.