Mig langar aðeins að auglýsa leik sem ég rakst á netinu. Takmarkið í honum er að drepa allt mannkynið. Reglurnar eru frekar einfaldar, en það eina sem þarf að gera er að smella á takka, og fyrir hvern smell er ein manneskja drepin.

Staðan þessa stundina þeger ég sendi inn greinina er að fjöldi mannkyns eftir er ca. 6108869558, þegar er búið að drepa rúmlega 88400466 manns. Þetta er ca. 1,42% mannfólksins. Það er mikið verk fyrir höndum. Byrjar var á minnstu löndunum og unnið sig upp í það stærsta og er skotmarkið núna Armenía, og auðvitað endar þetta á kína.

Ég hvet alla til að líta á þetta og gera sinn part. Og fyrir þá sem reka heimasíðu, þá er hægt að fá mæli á síðuna sína, sem segir til um hversu marga þú hefur drepið.

Slóðinn er: <a href="http://homokaasu.org/killeveryone">http://homokaasu.org/killeveryone</a>.

Einnig bendi ég á Real Life, eftir Greg Dean, en þar rakst ég á slóðann á þessa síðu.
<a href="http://www.reallifecomics.com">Real Life</a