Í haust verður gefinn út leikurinn David Beckham Soccer frá Rage fyrirtækinu, en þeir hafa gert Striker fótboltaleikina sem voru vinsælir í upphafi PlayStation. Einnig hafa þeir uppá síðkastið gert UEFA Striker fyrir Dreamcast og Psone.

David Beckham Soccer verður gefinn út fyrir Psone, Gameboy Color og Gameboy Advance.

Hérna eru helstu upplýsingar um leikinn…

Eini fótboltaleikurinn sem skartar “official” leyfi David Beckham.

Hægt er að velja á milli 350 liða, bæði félagsliða og landsliða.

Rétt nöfn leikmanna

Fjöldi spilunarmöguleika, s.s. Deild, bikar og Evrópukeppni
David Beckham “Training Mode”. Æfðu hornspyrnur, aukaspyrnur og sérstök “skill move” með leiðbeiningum frá David sjálfum.

Í leiknum er æviágrip David Beckham með fjölda mynda.

Mikið af földum “Stjörnuliða eða All Star” liðum sem David Beckham hefur valið sjálfur.