John Romero og Tom Hall skilja við Ion Storm John Romero og Tom Hall fóru frá Ion Storm í Dallas, samkvæmt nýrri fréttatilkynningu frá Adrenaline Vault.

Eins og flestir vita framleiddi John Romero marga leiki hjá id software sem að gjörbreyttu PC-leikjamenningunni, t.d. Doom og Quake. Hann stofnaði síðan Ion Storm ásamt Tom Hall og Warren Spector og framleiddi hinn umdeilda Daikatana. Tom Hall var hinsvegar skapari hins nýja Anachronox.

Ekki er enn vitað hvað vinirnir tveir ætla sér, en þó má búast við því að Romero haldi áfram að sinna tölvuástríðu sinni.

<a href="http://www.avault.com/news/displaynews.asp?story=7202001-84629">Tilkynning Adrenaline Vault</a>

Ef tengill virkar ekki:
http://www.avault.com/news/displaynews.asp?story=7202001-84629