Yuri's Revenge - Framhaldið af Red Alert 2 Fréttatilkynning sem var að koma frá Westwood Studios ….

Starfsmenn Westwood Studios hafa verið undanfarnar vikur í stúdíói
ásamt leikurunum úr Red Alert 2 til að taka upp atriði fyrir Yuri's Revenge frá EA Games

Myndatökum er lokið, en vinnan við aukadiskinn fyrir mestselda leik ársins 2000 heldur áfrám.

Allir leikararnir úr Command & Conquer Red Alert 2™ hafa snúið til baka til Westwood Studios™ og hafa verið í sumar að kvikmynda millikaflana fyrir PC leikinn, Command & Conquer Yuri’s Revenge™. Þessi PC CD-ROM aukadiskur fyrir Red Alert 2 er klár til útgáfu í haust og verður gefinn út undir merkjum EA GAMES™ vörumerki Electronic Arts.

Þekktir karakterar munu aðstoða við að endurlífga Red Alert 2 heiminn. Karakterar á borð við Kari Wuhrer (Sliders, Beverly Hills 90210) í hlutverki Special Agent Tanya, Udo Kier (Armageddon, Blade) í hlutverki hins illgjarna Yuri, Barry Corbin í hlutverki General Carville, Ray Wise í hlutverki forseta Dugan og Athena Massey í hlutverki Lt. Eva Lee. Leikararnir eyddu viku í 4000 fermetra stúdíó Westwood til að kvikmynda klukkutíma langa millikafla sem fléttast inní “Single-Player” hlutann í Yuri’s Revenge. Vinnsla á myndefninu og klipping á atriðum þessum verða í vinnslu út júlí mánuð.

“Kvikmyndunin fyrir Yuri’s Revenge var örlítið viðburðarríkari en við höfum áður upplifað við gerð fyrri leikja,” segir framleiðandinn Miele. “Myndatökurnar stóðu yfir í um það bil viku, en það var sjaldgæft að hinir einstöku leikarar sæu hvorn annan. Og það er hér sem töfrar eftirframleiðslunnar koma í ljós. Við þurfum að klippa og setja þetta allt saman svo það líti út fyrir að leikararnir séu að tala við hvorn annan, þó að þeir hafi í raunveruleikanum aldrei hist.”

Yuri’s Revenge er stærsti aukadiskur í sögu Westwood, en á honum getur þú meðal annars spilað sem nýtt “lið”, sem er her stýrt af hinum dularfulla og illvíga Yuri. Í þessum nýja her eru hvorki meira né minna en 13 nýjar herdeildir og sex nýjar byggingar. Þar fyrir utan eru fjórar nýjar “Allied” herdeildir og byggingar, fimm nýjar “Soviet” herdeildir og byggingar, 14 nýjar “Single-Player” herferðir, 10 nýjar “cooperative” herferðir, 20 nýjar “skirmish” herferðir, nýjir netmöguleikar og nýr söguþráður sem þróar hinn magnaða heim Red Alert 2.

Í hinum upprunalega Red Alert 2, var Yuri hermaður sem stýrt var af “Soviet”. Á þessum aukadisk hefur Yuri stofnað sinn eigin her og ætlar á eigin spýtur að taka yfir heiminn með því að nota hugarorku og sína sálrænu krafta.


Foxarinn