Jamm það er byrjað að gera Max Payne 3!

Það er nú bara nýbúið að staðfesta að hann sé í framleiðslu þannig að því miður eru næstum engar upplýsingar um hann. En þetta er það sem ég veit.

Það á að taka nokkur ár að gera hann (engin dagsetning komin á leikin, ekki einu sinni ár). Remedy entertainment gerði fyrsta og annan leikin en óvíst er um hver muni gera þann þriðja, en það er ekki sami framleiðandi og gerði fyrstu tvo leikina. Leikur 2 seldist nefninlega ekki jafn vel og búist var við, þrátt fyrir mjög góða dóma. Gathering var útgefandi fyrsta leiksins, en Rockstar gaf út annan leikin og mun líka gefa út þriðja. Það er ekki kominn neinn titill á leikinn. Virðist vera að leikurinn eigi að koma fyrir pc, ps2 og xbox.

Þeir sem eiga Max payne 1 eða 2 eða báða mæli með að þið kíkið á þessi mod.

Cinema (Max payne 2) http://www.3dactionplanet.com/maxpayne/
Matrix Revelutions (Max Payne 1) http://dynamic6.gamespy.com/%7Ematrixrevolutions/#