Lord of the rings leikurinn Eins og sumir eiga eftir að taka eftir er þetta tekið af skifan.is

Leikurinn Two Towers er byggður á fyrstu tveimur kvikmyndunum sem gerðar hafa verið eftir Hringadróttinssögu Tolkien. Hér geta leikmenn upplifað stærstu senurnar úr myndunum tveimur, Fellowship of the Ring og Two Towers. Í leiknum getur maður stýrt hasarhetjunum Aragon, Legolas og Gimli sem berjast við hlið annarra aðalpersóna myndanna. Hér lendir maður í bardaga við haug af orcum og öðrum kvikindum sem við þekkjum úr myndunum, svo sem Cave Troll og Saruman. En það er ekki nóg að sveifla bara sverðinu í allar áttir, því leikmenn verða að beita herkænsku í bardögunum, og velja réttu persónurnar fyrir hverja orrustu fyrir sig. Leikurinn inniheldur 16 verkefni og er umhverfi leiksins tekið beint úr myndunum, svo og öll tónlist sem samin var af Howard Shore og spilaði stórt hlutverk.

Þetta er örugglega góður leikur sem margir eiga eftir að kaupa, meðal annars ég :P
<iframe src="