Metroid Fusion Metroid Fusion eða Metroid 4 sem kominn er á Game Boy Advance er alveg frábær. Það hljóta flestir hérna að kannast við Metroid seríuna.
En allavega, í leiknum ertu Samus Aran eins og venjulega og átt að berjast við ,,X-Parasytes". Eitt slíkt fyrirbæri ræðst á Samus. Samus er nær dauða en lífi þangað til það er fundið mótefni gegn X-Parasyteinu með því að nota Metroid. Út af Parasyteinu hefur búningurinn hennar Samus-ar skemmst mikið og hún er orðin mun veikari. Nú fer hún í eitthvað space station dæmi því að X-Parasytein hafa invade-að það.

Leikurinn er eins og flestir þessir Metroid leikir, drepa þessa og hina, þ.eþaþs X-Parasytes í þessum leik og ná í hin og þessi ability til að komast áfram. Nokkrir góðvinir úr öðrum Metroid leikjum koma aftur.
Það er bara eitthvað við þennan leik sem er frábært. Ég veit ekki alveg hvort hann nær Super Metroid (Metroid 3) en þessi leikur er einn besti Game Boy leikur sem ég hef lengi prófað. Enginn Metroid aðdáandi á að sleppa við að fá sér þennan leik. Ég get ekki slitið mig frá honum:)

P.S: Það er meira að segja eitt svoldið spúkí í hinum.