Ég var að fá Need for Speed: Hot Pursuit 2 ég get ekki sagt annað en þetta er snilldar leikur, með bestu bílaleikjum sem ég hef prufað. Hægt er að velja um að fara í hot pursuit, championship, singel race eða quik race. Í hot pursuit og championship þarftu að vinna þig og keppir mismunandi bílu. Í pursuit ertu með lögguna á eftir þér allan tíman og það er rosa action í gangi, löggan getur beðið um að setja upp vegatálma kalla á þyrlu eða fá annan bíl til að hjálpa sér. Leikurinn hefur upp á að bjóða glæsikerrur á borð við Aston Martin, BMW, Chevrolet, Viper, Ferrari, Mercedes-Benz og Porsche svo að eitthvað sé nefnt. Allt landslag í leiknum er rosavel gert ég held að ég hafi aldrey séð flottara landslag. Ég mæli með að allir hlaupi út í búð og nái sér í þennan leik bæði er hægt að fá hann í PC og PS2 ég er ekki viss hvort að það sé hægt að fá hann í fleiri tölvur þið látið mig þá bara vita. Ég ætla að gefa leiknum 4,5 af 5 mögulegum í einkunn.

Árni
arni@ninny.is
Árni Þór