Á Kvikmyndakubbnum undir “Sjá meira” eru linkar í alla trailerana
eins og allir eiga að vita. Ég var einmitt að laga marga þeirra en en eins
og hvurslags benti mér á, virkuðu sumir bara alls ekki.

Hvað um það, allir ættu að virka núna, nema einn: 27.5 MB
Internet-trailerinn. Apple var eina síðan (mér vitanlega) sem voru með
þennan trailer á síðu sinni en núna hefur hann verið fjarlægður.

Ég er reyndar með hann inni á tölvunni minni en mig vantar vefpláss
einhvers staðar til að setja hann á netið.

Ef einhver veit um síðu sem hýsir þennan trailer eða veit um frítt
vefpláss einhvers staðar, látið mig vita..

Ég veit ekki hvort að ég gæti fengið auka pláss hérna á huga fyrir þetta
en við sjáum hvað setur…