Já, þið heyrðuð rétt, ég og 2469 höfum ekki undan að samþykkja :) [Kaldhæðni]

Sannleikurinn er sá að nú sárvantar innsent efni, en ég og 2469 höfum verið að senda meirihlutann af öllu efni inn sjálfir.

Við viljum ekki stjórna með svona einokun því þið eigið að reyna að móta áhugamálið með okkur.

Við erum ekki stjórnendur til að birta eingöngu það efni sem okkur finnst marktækt (myndir ofl.).

Þið verðið að aðstoða okkur, því þannig takið þið virkan þátt í stefnu áhugamálsins :)

Gerum þetta að enn betra áhugamáli enn fyrir er.