The White Tower of Elwing (klikka fyrir stærri mynd) Hérna sjáum við The White Tower of Elwing. Elwing var móðir Elronds og Elros og kona Eärendils. Þennan turn byggðu Valarnir handa henni, þarna bjó hún og lærði tungumál fuglanna því fuglarnir lifðu með henni. Eitt sinn kastaði Elwing sér í sjóinn niður úr turninum ásamt Silmaril steini. Sá Ulmo, einn af Völunum hana þá og bjargaði henni með því að gefa henni þann hæfileika að breyta sér í hvítan fugl. Flaug hún þá með Silmaril steininn og var hún eins og fljúgandi stjarna. :-)