Núna í dag, þegar að ég kom heim úr þrælabúðunum, ég meina skólanum, þá blasti við mér kassi merktur föður mínum en sagðist hann þetta vera til mín. Þegar að ég opnaði kassan sá ég það sem að ég hafði beðið eftir nokkuð lengi, sendingin frá Lord of the Rings: official fanclub. Ég fékk sent tímarit sem að inniheldur viðtal við Elijha Wood og Sean Astin og einnig ýmsar upplýsingar sem að PJ talar um, og margt margt fleira. Einnig fékk ég sent flott blað sem að bauð mér velkominn í klúbbinn og tvær geðveikt flottar myndir(held að þetta kallist litographs), önnur af föruneytinu í Rivindell og hin “Huge sculpture pillars formed the Gates of Argonath”. Ég verð bara að segja að ég er nokkuð ánægður með þetta en veit einhver hvenær ég á að búast við næstu sendingu, voru það tveir mánuðir sem liðu á milli?…..eða?<br><br>——————————
<i><b>“Elen síla lúmenn' omentielvo”-“A star shines on the hour of our meeting”</i></b>




<a href=http://kasmir.hugi.is/Smokey/>mjási´z palace</a