Góðan dag allir Tolkien aðdáendur.

Í morgun kom pabbi minn heim frá USA og hann færði mér frábæra gjöf. Þetta er kassi sem er með 9 geisladiskum í. Samanlagt 12 tíma upplestur bókanna þriggja!! Þrír geisladiskar á bók. Þetta er ekki bara venjulegur leiðinlegur upplestur heldur er þetta leikrit! Rosalega skemmtilegt að hlusta á þetta og svo er tónlist inn á milli.

Ef þið eruð á leið til Bandaríkjanna eða nennið að panta ykkur þetta í gegnum netið þá mæli ég eindregið með þessu! Rosalega skemmtilegt og mjög vel gert. Frábærlega vel lesið og allt bara:)

Check it out..
- Halla