Jæja ég er auðvitað búin að sjá myndina enda fáir sem hafa látið hana fram hjá sér fara.

Mér fannst myndin alger snilld!!!!

Í fyrsta sinn á ævi minni finnst mér myndin eiginlega vera betri en bókin því mér fannst hún svo óttalega langdregin eitthvað.

En það var eitt í myndinni sem ég var ekki alveg sátt við og það var hann blessaður Gandálfur. Í bókunum finnst mér hann virka mikill galdrakall og svona en í myndinni fannst mér hann dáldið virka bara gamall karlstauli sem gat ekkert. Fannst hann óttalega veiklulegur eitthvað……

Kveðja
Kisustelpan