Jæja, ákvað að skella inn smá trivia, en (smá viðvörun) ég hef bara lesið bækurnar á ensku svo það væri betra ef þið gætuð sent mér öll nöfn og svoleiðis á ensku :)
Spurningarnar eryu miserfiðar en reynið bara ykkar besta :D

1. Hvað hét sonur Otho og Lobelia Sackville-Baggins?
2. Hver var formóðir Shelobs?
3. Hvaðan var Legolas?
4. Hvað hét yngsti sonur Finwes?
5. Af hvaða mannaflokki var Tuor?
6. Hverjum giftist Éowyn frá Rohan?
7. Nefndu alla þá sem einhverntímann áttu, fundu eða stálu hringnum.
8. Hvaða nafn bar Morgoth áður en hann stal Silmerillunum?

Bónusspurningar :) (auka stig, en erfiðar spurningar)
1. Hvað hét afi Aragorns? (pabbi pabba hans)
2. Hvað hét hestur Eorls hins unga?

Ekki setja svörin í álitið, þá geta allir séð þau. Sendið þau frekar á mig.



Bætt við 21. maí 2008 - 11:53
Seinasti skiladagur á svörum er 27. maí. Þá sendi ég inn svörin.
My brain surprises even me sometimes.