Eins og allir á þessu áhugamáli vita þá var eina leiðin til að eyðileggja hringinn í Lotr að henda honum í Dómsdyngju eða Mount Doom. Hvernig veit allt fólkið á Middle Earth að þetta sé rétt. Ekki er Dómsdyngja eina eldfjallið á allri Middle Earth, hefur einhver prófað að henda hringnum ofan í eitthvað annað eldfjall (og þau hljóta að vera fleiri en eitt). Og hver sagði að þetta væri eina leiðin, Sauron? (sá eini sem ég get hugsað mér að viti þetta fyrir víst) mynduð þið treysta honum? Ef einhver getur sagt mér einhvern rökstuðning á að þetta sé eina leiðin til að eyðileggja hringinn segið mér það þá.<br><br>Stand, Men of the West! Stand and wait! This is the hour of doom.

Gandalf