Það er ótrúlegt hvað Markaðssetningin hefur leitt af sér. Núna áðan var ég að fá frá pápa gamla hina ótrúlegustu hluti sem tengjast LotR(hann vinnur hjá Eurocard, sem er einn helsti styrktaraðilinn.)

Það var:

LotR bolur
LotR derhúfa(reyndar eru þessir hlutir nokkuð dæmigerðir fyrir slíkt, en ég hef þá með.)
Og haldið ykkur nú.LotR ilmkerti (ég þekkti ekki ilminn en þóttist vita að þetta var lembas lykt!)
LotR tattoo, einhverjar álfarúnir, þó ekki þær sem eru á Hringnum eina
Lítill bréfahnífur sem er eins og hið fínasta sverð(reynar var þetta nokkuð góður gripur :)
Og að lokum: LotR rennilásarhangfang! Ég hef ekki vitað annað eins! hvað það er ótrúlega margir hlutir sem eru framleiddir!

Núna held ég að ég fari og hringi í þjóðarsálina og nöldri pínulítið yfir markaðssetningu og græðgi.
<br><br><p align=“right”>
__________________________________________________________________________________________
<i>Mitt lífsmottó er: “Ég borða, þessvegna verð ég svangur.”
</i><img src="http://www.simnet.is/hringur/hugi/logo.jpg"