Ég var að klára lesa Hringadr.sögu (þessi 3 bindi) og reif þau í mig á viku. Ég hef kannski lesið soldið hratt því að þegar ég horfði á nýjasta treilerinn þá birtist Liv Tyler (Arwin) milli Fróða og hringvomanna (Svörtu Riddarana) í á einni og segir þeim að ef þeir vilji hann skuli þeir sækja hann.
Mig rámar ekkert í þetta, þegar hann var að flýja þá reis áin upp að skipun álfakonungsins. Getur einhver útskýrt þetta? Er treilerinn e.t.v. brot úr öllum myndunum? Mér sýndist það.