Í þessum pósti eru einstaklega miklir spoilerar hvað varðar eina mikla breytingu sem gerð hefur verið á sögunni.
Jæja hvað um það. Myndir voru að berast á netið sem staðfestir gjörsamlega breytinguna um að Orkar Sarúmans klekjist út úr eggjum í Orþanka, ekki ólíkt og við sáum í Matrix. Sjá má myndirnar á  Íslenska LOTR vefnum
Og satt að segja líst mér alls ekkert á þessar myndir. Þetta eru fyrstu lélegu myndirnar sem ég sé og vona ég virkilega að Peter Jackson viti hvað hann sé að gera núna.
Ég hef hingað til ekkert verið neitt mjög ósáttur með þessa breytingu en eins og ég sagði á Breytingasíðu minni  þá gæti ég sætt mig við þetta ef enginn B-mynda stíll yrði yfir þessu.
Þessar myndir gefa því miður til kynna það og vona ég að þetta líti betur út í myndinni eða verði einfaldlega klippt út.
Mér brá svo rosalega yfir að sjá þetta svona illa gert að ég varð að horfa á nýjasta trailerinn tvisvar áður en ég gat sannfært mig um að myndirnar yrðu ekki hörmung.
Jæja, þetta eyðileggur ekki myndirnar en mér líst ekki vel á þetta …
Hver eru ykkar viðbrögð ?
íslenskur vefur tileinkaður Lord of the Rings-trílógíunni
* Ítarlegar uplýsingar um kvikmyndirnar
* Efni um Silmerilinn og Hobbitann
* Upplýsingar um leikarana
* Slóðir í alla trailerana
* Stórt myndsafn úr trílógíunni