Ég er nýkomin frá Írlandi þar sem ég notaði tækifærið og keypti svolítið af Tolkien á ensku. Keypti líka Hobbitann á segulbandspólu og valda kafla úr LTR lesnir af Tolkien sjálfum !! En ég keypti The book of lost tales I og II en komst að því að bækurnar eru alls 12 um sögu Middle Earth. Varð reyndar ekki vör við hinar bækurnar tíu, er einhver sem hefur lesið þær allar ?? Þær heita ekki The book of the lost tales númeraðar uppí tólf, heldur hafa hinar tíu sjálfstæð nöfn.

Karna