Ég var að fá svar frá Skífunni en ég sendi þeim tölvupóst þar sem ég spurðist aðeins fyrir um frumsýningu LOTR á Íslandi. Samkvæmt markaðsstjóra LOTR á Íslandi þá verður heimsfrumsýning á LOTR, 10. des. (eitthvað sem ég hafði ekki heyrt áður) og líklega á sama tíma á Íslandi. Auk þess verða einhverjar forsýningar að því heimsfrumsýningunni lokinni en almenn frumsýning er enn 26.des. Mögulega verður einhver uppákoma við heimsfrumsýninguna sérstaklega fyrir hörðustu Tolkien aðdáendur hér heima. Ég ætla svo að vera í góðu sambandi við Skífuna um allar nýjustu fréttir varðandi LOTR mál á Íslandi!<br><br>
<br>
<IMG SRC="http://www.simnet.is/hringur/lotr7_files/image003.jpg“ alt=”“ align=”left“>
<a href=”http://www.simnet.is/hringur">Hringurinn eini </a>, íslenskur vefur tileinkaður Lord of the Rings-trílógíunni