Þetta eru fréttir í sambandi við hlutverk Saurons í kvikmyndunum.
Nokkrar upplýsingar hafa fengist úr handritinu og þar er ekki gert ráð fyrir því að það muni sjást meira í Sauron en í Last Alliance.

Í staðinn virðist vera sem að mikið verði hinsvegar gert úr hinu rauða auga Myrkahöfðingjans t.d. í spegli Galadríelar og stundum þegar Fróði setur hringinn á sig.

Það gæti svo sem verið að teknar hafa verið einhverjar senur sem við verður bætt en í handritinu er alla vega ekkert sagt um neinar auka setningar og slíkt.

Þannig að hvurslags og fleiri geta tekið gleði sína á ný.
Sauron verður ekki eyðilagður…<br><br>————————————————————————————————–
“Spyrðu eigi Álfa ráða því þeir segja bæði já og nei.”

Allt um Lord of the Rings:
www.simnet.is/hringu