Ég verð að segja að þetta er algjörlega út í hött. Það mætti lagfæra Tolkien áhugamálið, setja það undir fantasíubókmenntir og þá væri hægt að fjalla um Narniu, Lord of the Rings og allt mögulegt. Harry Potter áhugamálið hefur sýnt að það standi undir væntingum og sýnt að það er fullfært um að standa á eigin fótum. Það er ein bók og þrjár myndir eftir svo að það er nóg efni til þess að nöldra um.