Var Tolkien Rasismi? Hér er bara smá pæling. Var Tolkien Rasismi? Ég vona að enginn móðgist neitt rosalega útaf þessu en ég hef verið að velta þessu mjög lengi fyrir mér.
Í bókinni eru menn Vestursins þeir sem að eru góðir og heiðarlegir og berjast fyrir öllu sem er gott og heilagt í Miðgarði.
Mennirnir frá suðri og austri hafa hins vegar gengið til liðs við Sauron og eru semsagt orðnir vondir.
Tolkien var vesturlandabúi en ég hef samt aldrei heyrt um að hann hafi verið fordómafullur. En kannski var þetta hans leið til að vera með fordóma. Setja það í bókina. Koma þessu að á þennan hátt, hátt sem að flestir tækju ekki eftir. Þetta er ekki samsæriskenning en ég vil spyrja ykkur, alla notendur Tolkien-áhugamálsins að þessu.
Kynþáttahatari eða tilviljun?
Sjálf er ég ekki viss.

Ps. Myndin er algjörlega óviðkomandi þessu umræðuefni. Bara tengd Tolkien almennt.