Það er mjög erfitt að ná í þessa bók núna. Ég er að leita að henni og fór í Mál og Menningu á Laugavegi í fyrradag. Þar var hún ekki til, búin að vera uppseld síðan í desember 2004. Ég spurði hvort það stæði ekki til að hún kæmi aftur og það var ekki vitað. Afgreiðslumaðurinn lofaði að senda fyrirspurn og athuga málið. Ég hef hvergi séð þessa bók í bókabúðum í Reykjavík síðan ég byrjaði að leita. Hún virðist alls staðar vera uppseld. Ef einhver hefur séð hana nýlega í bókabúð þá endilega látið mig vita.
Karat.