Jæja, ætli að þetta sé ekki fyrsti korkurinn hér árið 2005, datt svona í hug að taka það fram eftir sjokkið sem ég fékk eftir að hafa lesið nafnið á korkinum: “ Síðasti korkurinn” ;)

Það er alveg agalegt hvað við erum búin að vera léleg að senda efni hingað inn og bara 2 tóku þátt í greinasamkeppninni.

Hvað með að gera eitthvað í þessu? Mér dettur í hug að við höfum einhvers konar áskorannir. T.d. að einhver skrifi grein og skori á einhvern annan notanda að skrifa grein, kannski um eitthvað ákveðið. Mér bara svona datt þetta í hug.

Reynum allavega að halda þessu lifandi :D

Karat