Ég veit ekki hvort það sé búið að nefna þetta áður, en þá verður bara að hafa það. En ég var að horfa á nýju útgáfuna að Lord of the Ring special extended DVD edition, The return of the King. Þá gat ég ekki betur heyrt og hef ég leyft fleirum að heyra þetta og eru allir sammála mér. En í þeirra mynd heyrist dimmrödd segja “Velkominn” (á íslensku) og þótti mér þetta nokkuð áhugavert og ákvað að deila þessu með ykkur. Þeir sem langar að ath. þetta, þá er þeim bent á að fara að tímanum 1:05:14 og hækka vél. Góða skemmtun