Ég er að gera verkefni fyrir skólann. Eitthvert sjálfstætt rannsóknarverkefni (og ég valdi auðvitað Tolkien :P). Málið er að ég ætla að gera heimasíðu til að setja fram það sem ég finn. Eina vandamálið er að það er til alveg óendanlega mikið af skemmtilegu og áhugaverðu efni um þennan mann. Og maður lendir í því veseni að sortera út hvað maður vill inn og hvað út.
Svo að það sem ég er að pæla í er: Hvað myndu menn vilja sjá á svona síðu?
“If it isn't documented, it doesn't exist”