Nú fer skólinn að verða búinn og þá fer maður að verða aðeins virkari á þessu áhugamáli. Ég geri ráð fyrir að maður fari að skrifa einhverjar stórar og miklar greinar um einhverja hluti í heimi Tolkiens. Ég hef nú þegar ákveðið nokkra hluti sem ég ætla að tala um. Og einnig mun maður verða virkari yfir höfuð á þessu áhugamáli. En má ég spyrja… er einhver annar sem ætlar að byrja að skrifa góðar og miklar greinar þegar sumarið byrjar??? Mér er nefnilega farið að finnast eins og þetta áhugamál sé að dofna aðeins, en ég get samt trúað því að margir skoði áhugamálið en eru sjálfir ekki virkir á því. En ég vona að það muni breytast þegar sumarið byrjar og fólk á eftir að eiga meiri frítíma. :) Ég ætla allavega að vera duglegur að skrifa greinar! Who's with me!?<br><br><b>The Balrog</b>
<i>“…it was like a great shadow, in the middle of which was a dark form, of man shape maybe, yet greater.”</i>

Steinþó