Jæja, þar sem að sumir eru svo rosalega spoilerahræddir, þá ætla ég að vara þá við hugsanlegum spoilerum í þessum skrifum mínum!


Ég var að spila ROTK leikinn á PS2 um daginn, og fór sem Samwise Gamgee í gegn um borð sem heitir Shelob´s lair! Þar inni var að finna mörg hundruð kóngulær, af öllum stærðum og gerðum, og þar á meðal nokkrar sem líta út eins og sú sem við sáum öll í trailernum! Þetta, ásamt því að Shelob sjálf var MUN stærri og KOLSVÖRT á litinn, þá held ég að við höfum bara séð einn af krakkalingunum hennar í trailernum! ;) Mig langaði bara að koma þessu á framfæri við þá sem eru enn að velkjast í vafa!

-turamba