Ég var víst búinn að formlega gefa það út að ég skildi labba út í hléi á ROTK ef að Imrahil fengi jafn slæma meðferð og Faramir fékk í TTT. En núna er ég bara ekki búinn að sjá neitt af honum í trailernum né neinum af prewiev myndunum á lordoftherings.net.

Svo hvar er Imrahil? Ekki segja mér að honum sé slept úr myndinni! Það var í lagi að sleppa Tom Bombadil en ef að einhver hérna ætlar að segja mér að Imrahil sé ekki í myndinni þá neita ég að sjá þessa mynd.

Er einhver hérna sem getur gefið mér svör? Er Imrahil í myndinni og er hann jafn svalur og í bókunum? <br><br>Lacho calad, drego morn!
Lacho calad, drego morn!