Sæl,

Mig vantar bók sex í The History of Middle Earth flokknum, The Return of The Shadow, í tengslum við ritgerð sem ég er að vinna um Tuma Bombadil. Vitið þið hvar hún fæst hér á landi? Eða væri eitthvert ykkar hugsanlega til í að lána mér hana? Ég myndi þá bara ljósrita það sem mig vantar upp úr henni og skila henni svo daginn eftir.

Og já, ég veit að ég gæti pantað hana. Ég mun gera það ef ég finn hana ekki fyrst hérlendis.

Kveðja
Sölvi