Ókei, mér finnst leiðinlegt að vera leiðinlegur, en er engin sía á þessum könnunum? Ég man ekki betur en að hæstvirtur admin hvurslags hafi verið að tala um kannannastíflu. Af hverju sleppir hann ekki að samþykkja þær kannanir sem eru augljóslega gjörsamlega út í hött, um ekki neitt, illa samdar og ekki einu sinni stafsettar rétt! Þetta fer bara alveg ótrúlega í taugarnar á mér og ég gat ekki orða bundist! Ég biðst afsökunnar, þetta er ekki persónulegt en: “boobis, slepptu þessu, gerðu það”! ;)

-turamba