Ég var að koma heim úr vinnunni (regnboganum), og á undan Jeepers Creepers 2 var flottasti trailer sem ég hef nokkurn tímann augum litið! Fegurðin er ólýsanleg! Ég er ennþá með gæsahúð eftir að hafa séð Frodo hlaupa undan Shelob með ljós Ëarendils í hendinni, Nazgúla steypa sér niður á Minas Tirith, Elrond rétta Aragorn Andúril, og Sam öskra “NOOOOOOO” inni í Dómsdyngju! Og það er enn meira! Ég sá hann tvisvar en man ekki nákvæmlega það sem sagt var í honum… :( Ég er ennþá með gæsahúð!!!

-turamba